Erlent

Flóttamannasmygl á Eyrarsundsbrúnni

Tveir menn voru handteknir í nótt á Eyrarsundsbrúnni milli Danmerkur og Svíþjóðar fyrir að reyna að smygla 14 Írökum til Svíþjóðar. Bíll þeirra var stöðvaður við komuna til Malmö og sögðust Írakarnir þá hyggjast sækja um pólitískt hæli í Svíþjóð. Írakarnir voru ekki í felum, heldur sátu allir í mestu makindum í smárútunni.
Máli þeirra verður vísað til innflytjendaeftirlitsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×