Erlent

Rússar segjast ekki hafa eitrað fyrir njósnaranum

Fjölskylda Livtinenkos sendi fjölmiðlum þessa mynd.
Fjölskylda Livtinenkos sendi fjölmiðlum þessa mynd. MYND/AP

Yfirvöld í Moskvu neita staðfastlega að hafa eitrað fyrir fyrrum njósnara KGB sem nú er búsettur í London. Alexander Livtinenko var fluttur á gjörgæsludeild á ný í gærkvöldi eftir að honum snögghrakaði. Læknar segja tvísýnt hvort hann muni halda lífi.

Livtinenko hefur gagnrýnt Pútín forseta Rússlands og fékk pólitískt hæli í Bretlandi eftir að hafa sakað fyrrum yfirmann sinn hjá rússnesku leyniþjónustunni um að hafa fyrirskipað launmorð á háttsettum stjórnmálamönnum innan Kremlarmúra.

Þungmálmurinn tallíum var notaður til að eitra fyrir Livtinenko. Það efni er meðal annars notað í miklu magni í rottueitri. Livtinenko hefur misst allt hár og er að fá gula slikju á hörundið, sem bendir til þess að lifrarstarfsemin sé í lamasessi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×