Erlent

Fjórum Bandaríkjamönnum og Austurríkismanni rænt í Írak

Fjórum Bandaríkjamönnum, einum Austurríkismanni og níu Írökum var rænt úr bílalest í Írak seint í gær, nærri kúvæsku landamærunum. Nokkrum Írakanna hefur verið sleppt og greindu þeir frá atvikinu. Ekki er vitað hverjir mannræningjarnir eru og þeir hafa ekki enn krafist lausnargjalds.

Bílalestin var á norðurleið en ræningjarnir réðust á bílinn um 50 kílómetrum suður af Basra, þar sem ofbeldi hefur verið hvað verst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×