Erlent

IKEA opnar á norðurhjara

MYND/Vilhelm Gunnarsson

Nyrsta IKEA-búð í heimi opnaði í dag í Haparanda í Svíþjóð þar sem nyrstu öldur Eystrasaltsins sleikja sandinn. Þetta lyftir hjörtum og vonum bæjarbúa og ekki síður tilkynning forstjóra IKEA að fyrirtækið muni veita 10 milljónum á ári næstu 10 árin til uppbyggingar í bæjarfélaginu.

Bæjarbúar og nærsveitungar biðu í röðum úti í snjókomunni eftir að fá útrás fyrir kaupgleðina. Mikil eftirvænting er hjá Haparanda-búum þar sem opnun búðarinnar merkir í þeirra augum mun meira en auðveldan aðgang að hillum og sófum. Síðan IKEA tilkynnti áform sín fyrir einu og hálfu ári síðan virðist allt á uppleið í bænum. Einnig er verið að byggja 50 þúsund fermetra vörumarkað. Eitt hótel er nýrisið og annað til verður reist til að geta hýst alla þá sem leggja leið sína í nyrstu IKEA-búð í heimi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×