Erlent

Bemba sættir sig ekki við tap í forsetakosningum í A-Kongó

Jean-Pierre Bemba biðlar til kjósenda af auglýsingaskilti sem hefur orðið fyrir sprengjuárás. Myndin lýsir vel ástandinu í Austur-Kongó þar sem ítrekað hefur komið til átaka milli stjórnarhermanna sem hliðhollir eru Kabila, sitjandi forseta, og hins vegar vígamanna sem ganga erinda uppreisnarleiðtogans Bemba.
Jean-Pierre Bemba biðlar til kjósenda af auglýsingaskilti sem hefur orðið fyrir sprengjuárás. Myndin lýsir vel ástandinu í Austur-Kongó þar sem ítrekað hefur komið til átaka milli stjórnarhermanna sem hliðhollir eru Kabila, sitjandi forseta, og hins vegar vígamanna sem ganga erinda uppreisnarleiðtogans Bemba. MYND/AP

Þegar 90% atkvæða höfðu verið talin í Austur-Kongó hafði sitjandi forseti Joseph Kabila öruggan meirihluta með 60% atkvæða. Fyrrum uppreisnarleiðtoginn Bemba virðist samt ekki ætla að una þeim úrslitum því hans fyrstu viðbrögð eru að væna kjörnefndina um að hagræða úrslitunum og svíkja þar með austurkongósku þjóðina.

Talsmaður Bemba lýsti í gær yfir að Bemba teldi sig raunverulegan sigurvegara kosninganna og hótar að virða ekki vopnahléssamkomulag ef um kosningasvindl hafi verið að ræða. Þetta skyggir á vonir Austur-Kongómanna um langþráðan frið, en kosningarnar hafa verið sagðar þær mikilvægustu í Afríku síðan Nelson Mandela var kjörinn forseti Suður-Afríku árið 1994.

Austur-Kongó er Mið-Afríkuríkið sem heitir á ensku Democratic Republic of Congo og er mun stærra en Vestur-Kongó sem liggur á Atlantshafsströndinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×