Erlent

Al Jazeera í loftið á ensku um hádegisbil

Merki arabísku fréttastöðvarinnar Al Jazeera.
Merki arabísku fréttastöðvarinnar Al Jazeera.

Arabíska sjónvarpsstöðin Al Jazeera telur nú niður í fyrstu útsendingu á ensku systurstöðinni, sem á að hefja útsendingar á hádegi í dag. Þessi alþjóðlega Al Jazeera mun senda út allan sólarhringinn frá Doha í Katar, Kuala Lumpur í Malasíu, Washington og London og segist munu sameina sjónarmið Miðausturlanda og útsendingargæði Vesturlanda.

Al Jazeera er fræg fyrir hnitmiðaðan fréttaflutning og djarfa spjallþætti en hefur einnig verið harðlega gagnrýnd fyrir að taka við og sýna myndbandsskilaboð frá hryðjuverkaleiðtogum á borð við Osama Bin Laden. Á Al Jazeera er hins vegar iðulega fjallað um málefni Miðausturlanda og arabaheimsins út frá sjónarmiðum sem falla milli skips og bryggju í vestrænum fjölmiðlum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×