Erlent

Bangladess lamað vegna mótmæla og ofbeldis

Mótmælin eru litrík í þessu Suður-Asíulandi sem er nær umlukið af Indlandi. Ganges-fljót rennur til sjávar í Bangladess.
Mótmælin eru litrík í þessu Suður-Asíulandi sem er nær umlukið af Indlandi. Ganges-fljót rennur til sjávar í Bangladess. MYND/AP

Verkföll, vegatálmar og vígaleg mótmæli gegn kjörnefnd fyrir þingkosningarnar sem verða haldnar í janúar lama allt daglegt líf í Bangladess fjórða daginn í röð í dag. Tugþúsundir mótmælenda lokuðu helstu vegum og járnbrautarlínum og nær engin starfsemi hefur verið í höfnum eða landamærastöðvum síðan á sunnudag.

Almenningur segir kjörnefndina hlutdræga og að hún muni reyna að hagræða úrslitum. Ofbeldi er ekki óalgengt í Bangladess og það verður enn meira áberandi fyrir kosningar. Þjóðin telur 144 milljónir en landið hefur haft lýðræðislegt stjórnarfar síðan 1990, í það minnsta að nafninu til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×