Erlent

Mótmæla stjórnarfari Pútíns í Rússlandi

Leiðtogi Bolsévíska þjóðarflokksins og skákmeistarinn Kasparov segjast ætla að halda til streitu mótmælafundi gegn Pútín, þrátt fyrir bann stjórnvalda.
Leiðtogi Bolsévíska þjóðarflokksins og skákmeistarinn Kasparov segjast ætla að halda til streitu mótmælafundi gegn Pútín, þrátt fyrir bann stjórnvalda. MYND/AP

Andstæðingar Pútíns Rússlandsforseta ætla ótrauðir að koma saman og ganga fylktu liði um götur Moskvuborgar í dag, þrátt fyrir að stjórnvöld hafi bannað samkomuna.

Skákmeistarinn Garrí Kasparov, sem er einn þeirra sem standa að mótmælunum, segir gönguna vera „fyrstu tilraun okkar til að mótmæla, í samræmi við stjórnarskrána, með aðgerðum á götum úti og sameina fólk með gjörólíkar pólitískar skoðanir“.

Auk Sameinuðu borgarafylkingarinnar, sem Kasparov er í forsvari fyrir, taka þátt í aðgerðunum meðal annars hreyfing róttækra bolsévíka, sem nefnist Bolsévíski þjóðarflokkurinn, og frjálslyndir hægrimenn sem kalla sig Bandalag hægriafla.

„Breytingar geta því aðeins orðið í Rússlandi að skipulagðar séu sameiginlegar aðgerðir ólíkra stjórnmálaafla,“ sagði Kasparov, en mótmælunum er meðal annars beint gegn nýlegri breytingu á kosningalögum og vaxandi ofríki stjórnvalda, eins og mótmælendurnir orða það.

Lögreglan gerði á þriðjudaginn húsleit á skrifstofum Kasparovs og félaga hans í Sameinuðu borgarafylkingunni. Borgaryfirvöld hafa bannað mótmælagöngu, en hafa þó boðið upp á að leyfa mótmæla­samkomu í Moskvu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×