Erlent

Þekkja ekki merki Rauða krossins

Þessi íraska kona, sem flúið hefur heimili sitt, nýtur aðstoðar Rauða hálfmánans.
Þessi íraska kona, sem flúið hefur heimili sitt, nýtur aðstoðar Rauða hálfmánans. MYND/AFP

Írak, AP Starfsmönnum Rauða krossins stafar meiri hætta af bandarískum hermönnum í Írak en átökunum þar í landi. Ástæðan er sú að fjölmargir þeirra þekkja enn ekki merki stofnunarinnar, sem í löndum íslamstrúar er rauður hálfmáni í staðinn fyrir kross.

„Við þurfum að eyða miklum tíma í að útskýra Rauða hálfmánann,“ sagði Jamal Al-Karbouli, yfirmaður Íraksdeildar Rauða krossins á blaðamannafundi í Genf í gær.

Talsmenn Bandaríkjahers í Írak sögðu hermenn sína reyna að sýna virðingu þegar að samskiptum þeirra við almenna borgara í Írak kemur, en höfðu að öðru leyti ekkert um þetta mál að segja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×