Erlent

Bardagar í Gaza og Ramallah

Lögreglulið, hliðhollt Fatah, ber á Hamasmönnum sem ætluðu að efna til fjöldagöngu.
Lögreglulið, hliðhollt Fatah, ber á Hamasmönnum sem ætluðu að efna til fjöldagöngu. MYND/AP

Liðsmenn úr Hamas og Fatah, tveimur helstu fylkingum Palestínumanna, skiptust á skotum bæði í Gaza-borg og í Ramallah í gær, daginn eftir að skotið var á Ismail Haniheh, forsætisráðherra Palestínustjórnar, þegar hann var á leiðinni heim til Gaza.

Spenna milli hópanna hefur aukist verulega síðustu daga og hafa ásakanir gengið á báða bóga. Hamas-liðar ásaka liðsmenn Fatah um að hafa staðið að árásinni á Haniyeh, sem er einn af leiðtogum Hamas-samtakanna.

Leiðtogar beggja samtakanna hafa þó varað liðsmenn sína við því að átökin geti undið upp á sig og snúist upp í allsherjar borgarastríð í Palestínu.

Átökin í gær vörpuðu nokkrum skugga á 19 ára afmæli Hamas-samtakanna, sem var í gær, en ekki var hætt við hátíðarhöld og tugir þúsunda manna tóku þátt í þeim í Gaza-borg.

Átökin í Ramallah hófust þegar palestínskt lögreglulið, hliðhollt Fatah, reyndi að koma í veg fyrir að Hamas-liðar efndu til fjöldagöngu til þess að halda upp á afmælið. Lögreglan hafði umkringt mosku, þar sem Hamas-menn höfðu safnast saman, og meinaði þeim útgöngu.

Þegar Hamas-liðarnir héldu engu að síður út úr moskunni tók lögreglan á móti, barði mennina með kylfum og skaut af byssum upp í loftið. Hamas-liðarnir börðust á móti lögreglunni sem á endanum tók að skjóta í átt að mannfjöldanum. Meira en þrjátíu manns slösuðust.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×