Verður sjónvarpað frá aftöku Saddams? 29. desember 2006 11:17 Aftaka hefur aldrei verið sýnd í fréttum bandarískra sjónvarpsstöðva.
Bandarískar sjónvarpsstöðvar velta nú fyrir sér hvernig þær eigi að haga fréttaflutningi sínum af aftöku Saddams Hussein um helgina. Búist er við því að aftkan verði tekin upp á myndband og hugsanlega sýnd í sjónvarpi í Írak. Sjónvarpsstöðvarnar CBS, NBC og Fox News hafa skýrt frá því að Saddam verði tekinn af lífi áður en helgidagur múslíma gengur í garð í Írak á miðnætti aðfaranótt sunnudags. Þjóðaröryggisráðgjafi Íraksstjórnar staðfesti í samtali við fréttastofu CBS, að aftakan yrði tekin upp á myndband. Enn er óljóst hinsvegar hvort sú upptaka verður síðan sýnd í sjónvarpi í Írak. Átta klukkustunda tímamunur er á milli Baghdad og austurstrandar Bandaríkjanna, þaðan sem fréttatímar bandarísku sjónvarpsstöðvanna eru sendir. Þetta þýðir að miðað við síðustu fréttir af tímasetningu aftökunnar verði Saddam líflátinn áður en klukkan verður 17 á laugardag Í New York og Washingon, eða kl 21 að íslenskum tíma. Miðað við upptöku hengingu 13 sakamanna sem stjórnvöld í Írak sendu frá sér á þriðjudaginn var, má gera ráð fyrir að upptakan af aftökunni verði ekki beinlínis barnvænt sjónvarpsefni. Fundað var sérstaklega um fyrirhugaðan fréttaflutning hjá að minnsta kosti tveimur bandarísku sjónvarpsstöðvanna í gær. ABC og CBS sögðust ekki ætla að sjónvarpa aftökunni í heild þó svo að myndband af henni lægi fyrir. Fulltrúi NBC segir að hægt verði að meðhöndla myndbandið þannig að velsæmis væri gætt. CNN og Fox News höfðu enn ekki ákveðið þegar síðast fréttist hvernig staðið yrði að verki hjá þeim. Aftaka hefur aldrei verið sýnd í fréttum bandarískra sjónvarpsstöðva.
Mest lesið Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Innlent Simmi lýsir áralöngu umsáturseinelti: Sat um hann í bílakjallara Innlent Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Innlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Fleiri fréttir Segist eiga fund með Pútín Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúran barm Fimm hermenn skotnir á herstöð Tvöfaldar tolla á Indland vegna kaupa á rússneskri olíu Stefnir í kjördæmastríð í Bandaríkjunum? Nýr forseti Póllands vill draga úr áhrifum ESB Stendur í vegi rannsóknar á milljarða svikamyllu Birtist óvænt á þaki Hvíta hússins Yfir 400.000 tilkynningar um kynferðisofbeldi Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Minntust fórnarlambanna í Hírósíma Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Sjá meira