Svartfellingar kusu sjálfstæði 22. maí 2006 18:45 Milo Djukanovic var ánægður með úrslitin. MYND/AP
Svartfellingar samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær að segja sig úr lögum við Serba. Þarlendir stjórnmálaleiðtogar telja leiðina inn í Evrópusambandið nú greiða. Serbar sitja hins vegar eftir með sárt ennið. Eftir atkvæðagreiðslu gærdagsins virðist júgóslavneska ríkjasambandið heyra sögunni til. Munurinn gat samt tæpast verið minni því samkvæmt bráðabirgðaúrslitum voru 55,4 prósent þeirra sem þátt tóku í kosningunni fylgjandi því að Svartfjallaland sliti sambandinu við Serbíu. Forsætisráðherra landsins var sigri hrósandi þegar hann ávarpaði þjóð sína seint í gærkvöld. Svartfjallaland varð hluti af Júgóslavíu við stofnun hennar árið 1918 og hélt svo sambandinu við Serbíu eftir að Júgóslavíu liðaðist í sundur á sínum tíma. Á síðustu árum hefur hins vegar æ fleiri Svartfellingum þótt sambandið við Serbíu vera dragbítur á framfarir í landinu og hafa kröfur um sjálfstæði orðið háværari í samræmi við það. Því ríkti mikill fögnuður í flestum héruðum Svartfjallalands í gær og í dag, til dæmis í höfuðborginni Podgorica. Svartfjallaland er raunar sjálfstætt að flestu leyti nema að nafninu til, til dæmis er gjaldmiðillinn þar evra á meðan Serbar nota dínar. Mikill áhugi er fyrir Evrópusambandsaðild og í dag gáfu leiðtogar þess í skyn að viðræður um í það minnsta aðgang að mörkuðum gætu hafist fljótlega. Brýnasta úrlausnarefni ríkisstjórnarinnar er hins vegar afar slæmt efnahags- og atvinnuástand en nálega þriðji hver Svartfellingur hefur ekkert starf. Sóknarfærin, til dæmis á sviði ferðaþjónustu, eru hins vegar fjölmörg og því líta landsmenn almennt björtum augum til framtíðarinnar. Hið sama er ekki að segja um Serba sem innan skamms gætu búið í landluktu ríki. Úrslitin í gær eru jafnfram byr í segl sjálfstæðissinna í Kosovo en viðræður um framtíðarstöðu þess standa nú yfir. Því er ekki loku fyrir það skotið að í lok þessa árs hafi ríkjum Evrópu fjölgað um tvö.
Erlent Fréttir Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira