Erlent

Danskar borga fyrir fegurðina

Fimmta hver dönsk kona eldri en sautján ára íhugar fegrunaraðgerð, kemur fram í nýrri danskri könnun sem fjallað er um á fréttavef Berlingske Tidende.

Í könnuninni, sem Gallup gerði fyrir dagblaðið, kom fram að um 320.000 danskar konur eldri en sautján ára hafa farið í brjóstastækkun eða farið í aðra útlitsbreytingu sem ætlað er að fegra þær, eða átta prósent af öllum fullorðnum Dönum. Þrír af hverjum fjórum Dönum sjá lítið sem ekkert athugavert við fegrunaraðgerðir, og á það við um karlmenn jafnt sem konur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×