Forseti Palestínu boðar til kosninga 17. desember 2006 01:30 Forseti Palestínu sagði tilraunir til myndunar þjóðstjórnar vera komnar í þrot og nú væri það í höndum fólksins að ákveða hvað væri framundan. MYND/AP
Forseti Palestínu, Mahmoud Abbas, tilkynnti í gær að hann muni boða til forseta- og þingkosninga við fyrsta tækifæri, mögulega í mars á næsta ári. Ríkisstjórn Hamas-samtakanna sagði ákvörðunina vera valdarán gagnvart palestínskum almenningi, en samtökin komust til valda í kosningum í janúar síðastliðnum. Í kjölfarið hefur Palestína verið beitt alþjóðlegum efnahagsþvingunum. Leiðtogar Hamas hvöttu Abbas til að segja af sér og segjast munu mótmæla ákvörðuninni með friðsömum hætti. Abbas hefur hvatt til myndunar þjóðstjórnar með Hamas og hans eigin flokki, Fatah, en samningaviðræður hafa ekki skilað árangri. „Kraftaverk þarf ef samningar um þjóðstjórn eiga að nást, eftir það sem Abbas hefur sagt í dag,“ sagði aðstoðarmaður forsætisráðherrans og Hamas-liðans Ismail Haniyeh. Hamas-samtökin telja ólögmætt að boða til kosninga. Ef samtökin ákveða að sniðganga kosningarnar mun það draga lögmæti þeirra í efa. Abbas hefur sjálfur lýst því yfir að hann muni ekki sækjast eftir endurkjöri, en skortur á frambjóðanda hefur verið vandamál innan Fatah-hreyfingarinnar. Svo geti farið að hreyfingin tapi kosningunum og Hamas styrki stöðu sína enn frekar. Tilkynning forsetans hlaut mikið lof hundruða stuðningsmanna í höfuðstöðvum hans á Vesturbakkanum. „Snúum okkur til fólksins, heyrum hvað það hefur að segja og leyfum því að dæma,“ sagði Abbas í ræðu sinni. Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, sagðist styðja ákvörðun Abbas, en hann var staddur í Egyptalandi á ferð sinni um Mið-Austurlönd. „Abbas hefur lagt hart að sér að mynda þjóðstjórn, þar sem allir, þar á meðal Hamas, hafa fulltrúa,“ sagði Blair. „En hann er einnig að sýna að hann getur haldið áfram án þeirra, ef þeir vilja ekki taka þátt.“ Næstu kosningar áttu að fara fram árið 2009, en skoðanakannanir sýna að Fatah og Hamas hafa svipað fylgi.
Mest lesið Rúmlega helmingur starfsmanna Félagsbústaða hættur Innlent Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Erlent „Myndi ekki koma mér á óvart ef það færi að gjósa þarna“ Innlent Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Erlent Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Erlent Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Innlent Einfalt að stýra glæpahring frá allt öðru landi Innlent Fiskúrgangi fargað á útivistarsvæði: „Þetta er náttúrulega bara viðbjóður“ Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Erlent Fleiri fréttir Opnar sig í nýrri bók: „Ég þekkti ekki þessa menn eða þessa konu“ Íri í haldi ICE óttast um líf sitt Rifust um Trump áður en faðir skaut dóttur sína til bana Loka flugvelli El Paso skyndilega og án útskýringa Jagland sviptur friðhelgi Furstadæmin þjálfa uppreisnarmenn í leynilegri herstöð Hætta að skilgreina gróðurhúsalofttegundir sem skaðlegar Einn í yfirheyrslu og ráðist í húsleit í tengslum við hvarf Nancy Guthrie Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Tíu látnir í skotárás á skóla í Kanada Nafngreindi sex mögulega samverkamenn Epstein á þinginu Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Macron segir Evrópumönnum að hrista af sér slenið Undirbúa nýja innrás til að afvopna Hamas Nýtt samkomulag eða nýtt vopnakapphlaup? Sprengdu hurðina af brynvörðum bíl Fundu sex nöfn mögulegra samverkamanna Epstein á tveimur tímum Þrýsta á Ísraela varðandi Vesturbakkann Hótar að koma í veg fyrir opnun brúar milli Windsor og Detroit Neitaði að svara spurningum á grundvelli fimmta viðaukans Var með krabbamein og lést af völdum blóðtappa í lunga Hvetur Starmer til að segja af sér Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Áhrifamiklir norskir erindrekar rannsakaðir vegna Epsteins Vilja herða skilyrði fyrir sænskum ríkisborgararétti Vilhjálmur og Katrín hafi „djúpar áhyggjur“ vegna Epstein-afhjúpunar Christchurch-morðinginn vill draga játninguna til baka Jimmy Lai dæmdur í 20 ára fangelsi Afgerandi sigur stjórnarflokkanna í Japan Sjá meira