Sendiherrar múslimaríkja skotmörk 5. júlí 2005 00:01
Uppreisnarmenn í Írak hafa fundið sér ný skotmörk í baráttu sinni, erindreka annarra múslimaríkja sem starfa í landinu. Þeir hyggjast þar með fæla trúbræður sína frá því að mynda tengsl við ríkisstjórn Íraks sem starfar í skjóli bandarískrar herverndar. Í gærmorgun særðist Hassan Malalah al-Ansari, fulltrúi ríkisstjórnar Barein í Írak, þegar skotið var á hann á leið til vinnu í Bagdad. Síðar um daginn varð Mohammed Younis Khan, sendiherra Pakistan í Bagdad, fyrir skotárás nokkurra byssumanna en hann slapp ómeiddur. Stjórnvöld í Islamabad hafa þegar kallað Khan heim. Skemmst er að minnast ránsins á Ihab al-Sherif, sendiherra Egyptalands, á sunnudag. Ekkert hefur til hans spurst síðan þá. "Markmiðið er skýrt, að skapa ótta," sagði formælandi Íraksstjórnar á blaðamannafundi í gær. Hann bætti því við að markmið árásanna væri að hrekja aðrar erlendar sendinefndir frá landinu. Barein er dyggur bandamaður Bandaríkjanna en á eynni hefur 5. flotinn höfuðstöðvar sínar. Pakistönsk stjórnvöld hafa stutt Bandaríkjamenn í stríðinu gegn hryðjuverkum en voru lítt hrifin af innrásinni í Írak.
Erlent Fréttir Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Fleiri fréttir Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Sjá meira