Sýrlendingum kennt um morðið 21. október 2005 00:01
Stjórnvöld í Sýrlandi og líbanskir bandamenn þeirra fá á baukinn í skýrslu rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna sem segir allt benda til aðildar þeirra að morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, í febrúar síðastliðnum. Í fyrrakvöld afhenti Detlev Mehlis, formaður rannsóknarnefndarinnar, öryggisráði SÞ og líbönsku ríkisstjórninni afrakstur ríflega fjögurra mánaða vinnu. Niðurstaða hennar er skýr: Flest bendir til beinnar aðildar sýrlenskra ráðamanna að tilræðinu. „Þegar höfð eru í huga þau miklu ítök sem sýrlenska og líbanska leyniþjónustan hafa í líbönskum stofnunum og stjórnmálalífi þá er erfitt að gera sér í hugarlund að svo þaulskipulagt banatilræði geti farið fram án vitneskju þeirra." Rannsóknarnefndin segir að sýrlenskir og líbanskir leyniþjónustumenn hafi undirbúið tilræðið í marga mánuði. Ahmad Abdel-Al, Líbani í sterkum tengslum við stjórnvöld í Damaskus, er sagður aðalskipuleggjandi tilræðisins en skýrslur um farsímanotkun hans vikurnar fyrir tilræðið sýna náin samskipti við alla þá sem nefndin grunar um græsku. Bróðir hans hringdi í Emile Lahoud, forseta Líbanons og lepp Sýrlendinga, nokkrum mínútum áður en bílsprengjan sem banaði Hariri -sprakk. Eitt vitni nefndarinnar segir að Sýrlendingar hafi ákveðið að láta myrða Hariri, sem alltaf var þeim óþægur ljár í þúfu, eftir að öryggisráð SÞ samþykkti ályktun fyrir rúmu ári þar sem brottflutnings sýrlenskra hersveita frá Líbanon var krafist. Sýrlenska ríkisstjórnin, sem í skýrslunni var jafnframt ásökuð um að reyna að afvegaleiða rannsóknarnefndina, neitar ásökununum staðfastlega. „Þetta er pólitísk yfirlýsing gegn Sýrlandi sem byggð er á vitnisburði manna sem eru þekktir fyrir hatur sitt á landinu," sagði Mehdi Dakhlallah, upplýsingamálaráðherra Sýrlands, í viðtali við al-Jazeera sjónvarpsstöðina í gær. „Skýrslan er hundrað prósent hlutdræg," bætti hann við. Lahoud Líbanonsforseti vísaði ásökunum á hendur sér á bug í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær og sagði rannsóknina hluta af rógsherferð gegn sér.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira