Erlent

Litlar líkur á alheimsvandamáli

MYND/AP
Heilbrigðisyfirvöld Evrópusambandsríkjanna segja litlar sem engar líkur á að fuglaflensan verði að alheimsvandamáli. Engu að síður verði gripið til varúðarráðstafana. Ráðherrarnir funda nú um það hvernig best sé að koma í veg fyrir að fuglaflensan breiðist frekar út en tilfelli hafa komið upp í Tyrklandi, Rúmeníu og Rússlandi. Evrópusambandið hefur sagt að hættan á faraldri í Evrópu sé afar lítil en varúðarráðstafanir séu þó mikilvægar. Niðurstöður fundarins í gær voru þær að samvinna milli ríkja væri nauðsynleg. Alls hefur sextíu og einn maður látist af völdum veirunnar síðan hennar var fyrst vart árið 2003. Ráðherrarnir voru sammála um að nauðsynlegt væri að eiga nóg af viðeigandi lyfjum en að vandamálið sé og verði aðallega í Asíu. Kínversk stjórnvöld ætla að stórherða baráttu sína gegn því að fuglaflensa breiðist út í landinu. Stjórnvöld þar í landi segja ástandið grafalvarlegt og hyggjast þau beita bólusetningum í von um að hægt verði að gera fugla ónæma gegn flensubakteríunni og hafa nú þegar 91.000 fuglar fengið ónæmislyf. Fundað verður nánar um málið á fundi ráðherra Evrópusambandsríkjanna í Kaupmannahöfn í næstu viku.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×