Erlent

Barnasmyglarar handteknir

Hollenskt par var handtekið á alþjóðaflugvellinum í Kólumbíu í vikunni fyrir að kaupa tíu daga gamalt barn þar í landi og ætla að smygla því til Hollands. Maðurinn er hollenskur en konan, sem er fædd í Kólumbíu, hefur tvöfaldan ríkisborgararétt. Parið getur átt yfir höfði sér allt að 10 ára fangelsisdóm verði þau fundin sek og gildir það sama um kynmóður barnsins sem og seljandann sem einnig hafa verið handtekin. Rannsókn á málinu stendur nú yfir og hefur barninu verið komið fyrir í umsjón félagsmálayfirvalda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×