Erlent

Lögfræðingi Saddams rænt

Fyrrverandi lögfræðingi Saddams Husseins, sem ákærður hefur verið fyrir aðild að fjöldamorðum ásamt Hussein og 7 öðrum, var rænt af skrifstofu sinni í Bagdad í gær. Samkvæmt AP fréttastofunni er Awad al-Bandar, sem er fyrrum meðlimur Baath flokksins, ákærður fyrir að eiga aðeil að morðum á 150 sjíamúslimum í Írak árið 1982. Ekki er nánar vitað um málið að svo stöddu en enginn hefur lýst mannráninu á hendur sér.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×