Erlent

Ástrali dæmdur til dauða

Ástralskur maður hefur verið dæmdur til dauða í Singapúr fyrir eiturlyfjasmygl. Hann var tekinn með tæplega 400 grömm af heróíni á alþjóðaflugvellinum í Singapúr árið 2002 þegar hann millilenti þar á leið sinni frá Víetnam til Ástralíu. Áströlsk yfirvöld hafa reynt allt sem í þeirra valdi stendur til að fá dóminum hnekkt en án árangurs. Maðurinn tapaði í gær lokaáfrýjun í málinu og allt stefnir því í að hann verði tekinn af lífi á næstunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×