CIA rekur net starfsstöðva um allan heim 19. nóvember 2005 08:00 Höfuðstöðvar CIA í Langley Porter. Goss forstjóri CIA er handgenginn George W. Bush Bandaríkjaforseta. Hann hefur ekki lagt jafn mikla rækt við að viðhalda tengslunum við erlendar leyniþjónustustofnanir og George Tenet, forveri hans.
Undanfarin ár hefur bandaríska leyniþjónustan CIA myndað náin tengsl við erlendar leyniþjónustustofnanir og sett upp stöðvar í fjölda landa þaðan sem aðgerðum gegn grunuðum hryðjuverkamönnum er stýrt. Stöðvarnar tengjast ekki leynifangelsum sem talsvert hafa verið til umræðu að undanförnu. Bandaríska dagblaðið Washington Post rekur í ítarlegri frétt hvernig CIA hefur á undanförnum árum komið sér upp nánum tengslum við leyniþjónustur helstu bandamanna Bandaríkjanna. Saman hafa þær sett á fót aðgerðastöðvar í rúmlega tuttugu löndum þaðan sem fylgst er með grunuðum hermdarverkamönnum og ákvarðanir teknar um hvort þeir skuli handteknir og yfirheyrðir. Öryggissveitir viðkomandi lands sjá yfirleitt um sjálfar aðgerðirnar, þó undir dyggri handleiðslu starfsmanna CIA sem láta þeim í té búnað af ýmsu tagi og veita þeim gagnlegar ábendingar. Hinir handteknu eru svo jafnvel fluttir til annarra landa. Í greininni er fullyrt að yfir þrjú þúsund manns hafi verið handteknir með þessum hætti síðan 11. september 2001 og þá eru grunaðir hryðjuverkamenn sem teknir hafa verið í Írak ekki taldir með. Þessi samvinna CIA og leyniþjónustustofananna hófst aftur á móti nokkru fyrr, eða um miðjan tíunda áratuginn, þegar herskáir múslimar frá Mið-Austurlöndum tóku að aðstoða trúbræður sína í Bosníu og Tsjetsjeníu. Eftir árásirnar 11. september voru hins vegar fjárframlögin til þessarar starfsemi aukin og fleiri vinveittum ríkjum bætt í hópinn. Stöðvarnar er að finna í öllum heimshornum, einkum þó í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Suðaustur-Asíu. Sumar þeirra eru í ríkjum sem ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur gagnrýnt fyrir valdníðslu gegn þegnum sínum, til dæmis Úsbekistan og Indónesíu. Athygli vekur að höfuðstöðvar þessa starfsstöðvanets eru í París en Frakkar gagnrýndu Bandaríkjamenn mjög í aðdraganda innrásarinnar í Írak. Washington Post segir aðgerðastöðvarnar alls ótengdar leynifangelsunum sem CIA rekur í átta löndum en þaðan hefur svonefndum fangaflugvélum verið flogið, meðal annars með viðkomu á Íslandi.
Erlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira