Bjerregård nýr borgarstjóri í Kaupmannahöfn 16. nóvember 2005 21:01
Ritt Bjerregård verður borgarstjóri í Kaupmannahöfn eftir kosningasigur jafnaðarmanna í sveitarstjórnakosningum í Danmörku í gær. Hún verður fyrsta konan til að gegna embættinu. Jafnaðarmenn unnu stórsigur í sveitarstjórnakosningunum í Danmörku í gær, en þeir fengu 34,3% greiddra atkvæða á landsvísu. Flokkurinn náði meirihluta í Kaupmannahöfn, Árósum og Álaborg en tapaði reyndar fylgi í Óðinsvéum þar sem flokkurinn hefur verið í meirihluta síðustu 68 ár. Kosningaþátttaka var tæp sjötíu prósent. Hægri flokkurinn Venstre fékk 27,5% atkvæða, tæpu einu prósentustigi minna en í síðustu sveitarstjórnarkosningum árið 2000. Flokkurinn tapaði þremur borgarfulltrúum í Kaupmannahöfn og Sören Pind, borgarstjóraefni Venstre, ákvað í gær að hætta í borgarstjórn vegna úrslitanna eftir 12 ára setu þar. Ritt Bjerregård er þó líklega holdgervingur sigurvegarans í þessum kosningum. Bjerregård er 64 ára gömul og hefur verið virk í stjórnmálum í rúma þrjá áratugi. Hún var fyrst kjörin á þing árið 1971 og hefur meðal annars gegnt embætti menntamálaráðherra og matvælaráðherra auk þess sem hún sat í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fyrir Danmörku. Ferillinn hefur þó verið fjarri því áfallalaus, hún hefur tvívegis þurft að segja af sér vegna hneykslismála. En Bjerrågard hefur verið sökuð oftar en einu sinni um að misnota opinbert fé. Bjerragård þykir hafa mikla persónutöfra og hún hefur sýnt það og sannað að hún á fleiri en eitt og fleiri en tvö pólitísk líf - alltaf rís hún upp eins og fuglinn Fönix og að þessu sinni til að setjast í borgarstjórastólinn í Kaupmannahöfn, fyrst kvenna. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri í Reykjavík, var meðal þeirra sem sendi Bjerregaard hamingjuóskir í dag.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Erlent Hnakkrifust á bak við luktar dyr Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð í Hafnarfirði Innlent „Þetta er sama fólkið og skilar ekki innkaupakerrunni“ Innlent Mikill reykur frá brennandi bíl í Fossvogi Innlent Laugin lokuð vegna flögnunar og lokað enn lengur næsta sumar Innlent Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Innlent Ekki séð dóttur sína í tvö ár og lá í sínu eigin þvagi í alla nótt Innlent Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Innlent „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Erlent Fleiri fréttir Ók inn í hús og varð konu á sjötugsaldri að bana Tveir risaskjálftar í Venesúela: Óttast að manntjónið sé gríðarlegt Hús hrundu þegar skjálfti upp á 7,1 reið yfir Fyrsta ebólutilfellið í Evrópu staðfest „Í fyrsta skipti sá ég fólk grátandi á götum Lundúna“ Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Fyrrverandi eiginmaður Sturgeon í fimm ára fangelsi Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Sjá meira