Bush gagnrýndur 29. júní 2005 00:01
Öryggi Bandaríkjanna byggist á stríðinu í Írak, sagði Bush Bandaríkjaforseti í gær. Hann vísaði ítrekað til hryðjuverkaárásanna ellefta september þegar hann ræddi stríðsreksturinn. Bush hélt sjónvarpsávarp á besta tíma í gærkvöldi í von um að slá á gagnrýni og byggja upp traust almennings, en kannanir benda til þess að það fari þverrandi. Í ávarpinu ræddi hann ástandið í Írak og tengdi það ítrekað hryðjuverkaárásunum í Bandaríkjunum ellefta september 2001. Hann sagði al-Qaeda og Ósama bin Laden eina meginástæðuna fyrir því að halda yrði áfram harðri baráttu í Írak. Þar hefðu hryðjuverkamenn hreiðrað um sig og lytu stjórn Abu Musabs al-Zarqawis, sem heitið hefur bin Laden hollustu. Gagnrýnendur brugðust ókvæða við tilvísunum til ellefta septembers og bentu á það sem Bush hefur sjálfur viðurkennt: að ekkert samhengi sé á milli hryðjuverkamannanna sem gerðu árásirnar þá og Saddams Hússeins. Könnun CNN og USA Today bendir til þess að almenningur sjái ekki heldur nein tengsl. Helmungur aðspurðra taldi málið óskilt en fjörutíu og sjö prósent voru á því að samhengi væri á milli árásanna og stríðsins í Írak. Bush kynnti engar nýjar hugmyndir um hvernig binda mætti enda á átökin í Írak og bað landa sína að sýna þolinmæði. Hann hafnaði umræðu um dagsetningu heimkvaðningar bandarískra hermanna í Írak og sagði ótímabært að ræða nokkurt slíkt. Hann hafnaði því jafnframt að hermönnum í Írak yrði fjölgað, þar sem yfirmenn heraflans þar teldu það ónauðsynlegt. Tímaritið Economist hafði þó nýlega eftir hershöfðingjum í landinu að helst þyrfti að fjölga í heraflanum. Bush sagði vænlegra að byggja upp írakskar sveitir, en talsmenn Hvíta hússins segja hundrað og sextíu þúsund Íraka hafa lokið þjálfun, en stjórnarandstæðingar vestra segja hið rétta í málinu að einungis tvöþúsund Írakar séu færir um að sinna störfunum sem sinna þarf. Það gæti reynst örðugt að senda fleiri bandaríska hermenn til Íraks þar sem illa gengur að fá nýliða til að ganga í herinn. Í ávarpi sínu hvatti Bush raunar þá sem hefðu áhuga á hermálum til að ganga í herinn hið fyrsta. Hann sagðist einnig vita að margir Bandaríkjamenn spyrðu sig hvort að fórnirnar í Írak væru þess virði, og fullyrti að svo væri. Þær væru nauðsynlegar til að tryggja öryggi Bandaríkjanna. Vinsældir Bush eru þær minnstu sem mælst hafa síðan að hann flutti í Hvíta húsið 2000. Fimmtíu og sex prósent eru ósátt við stjórn hans á öllu tengdu Írak og meirihluti aðspurðra telur nú í fyrsta sinn að Bush hafi vísvitandi afvegleitt þjóðina þegar hann færði rök fyrir innrásinni í Írak á sínum tíma.
Erlent Fréttir Mest lesið Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Erlent „Eitthvað það tilgerðarlegasta og hallærislegasta sem ég hef séð“ Innlent „Hver hefur reynslu af því að byrla eiginkonu sinni?“ Innlent Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Inga of upptekin til að funda: „Við höfum ekki fjármagn, engan stuðning“ Innlent Inga sendir boltann á sveitarfélögin Innlent „Lóa í Víðum“ sveitarstjóraefnið Innlent „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Erlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Fleiri fréttir Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Fimm látnir eftir skotárás í Kænugarði Skotið þrátt fyrir heimild frá hernum: Áhafnir tilkynna árásir á Hormússundi Funduðu með forstjóranum þrátt fyrir lögsókn Hormússundi lokað á ný Bretar og Frakkar ætla að leiða aðgerðir við Hormússund Hormússundið opið á ný Vopnaðir ræningjar héldu 25 í gíslingu í banka á Ítalíu D4vd handtekinn vegna gruns um að hafa banað táningsstúlku Mandelson veitt öryggisheimild þrátt fyrir að hafa fallið á bakgrunnsathugun Brothætt vopnahlé í Líbanon hefur tekið gildi Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Sjá meira