Neyðarástand á Yukatanskaga 22. október 2005 00:01
Fellibylurinn Wilma fer nú yfir Yukatanskaga í Mexíkó og flæðir gríðarlegur sjór yfir baðstrandarbæinn Cancun. Allt að átta metra djúpt vatn er á sumum svæðum. Vindhraðinn í óveðrinu hefur náð allt að sextíu og einum metra á sekúndu. Lýst hefur verið yfir neyðarástandi í fimmtíu og fimm héröðum á Yukatanskaga. Eitt dauðsfall hefur verið rakið til fellibylsins, en 33 ára gömul kona fékk raflost og lést í Cancun þegar hún var að búa hús sitt undir óveðrið. Óttast er að Wilma kunni að valda miklum skemmdum á svæðinu, en þegar hafa mörg hús eyðilagst og tré, sem rifnað hafa upp frá rótum, liggja á víð og dreif. Þúsundir ferðamanna eru strandaglópar í Cancun, en þeim hefur flestum verið komið fyrir í neyðarskýlum, fjarri strandlengjunni. Miðja fellibylsins er nú við bæinn Playa del Carmen, en þar eru aðstæður hættulegar þessa stundina þar sem brak og annað lauslegt flýgur á miklum hraða um götur bæjarins. Mikið úrhelli fylgir Wilmu og í gær mældist úrkoma á Mujeres-eyju við Júkatan-skaga um 590 millimetrar, sem er mesta úrhelli sem mælst hefur á svæðinu á einum degi. Á eynni Kúbu hafa hátt í 400 þúsund manns yfirgefið heimili sín við strandlengjuna af ótta við gríðarleg flóð í kjölfar Wilmu. Búist er við að fellibylurinn færi sig í átt til suðurhluta Flórída á morgun, en veðurfræðingar telja að þá verði styrkur bylsins orðinn minni, en hann er nú. Engu að síður hafa íbúar á Flórída-Keys eyjaklasanum verið hvattir til að gera varúðarráðstafanir og ferðamenn hvattir til að forða sér.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Sjá meira