Erlent

Grunuð um að hafa reynt að drekkja dóttur sinni

Norsk kona er grunuð um að vera völd að dauða fimm ára gamallar dóttur sinnar sem lést um helgina, eftir að hafa legið milli heims og helju í viku. Konan, sem er 38 ára gömul, er talin hafa reynt að drekkja dóttur sinni í baðkari í íbúð þeirra í Osló fyrir um viku síðan. Stúlkan var flutt á spítala en hún lést þar nú um helgina. Konan er talin eiga við geðræn vandamál að stríða og var hún flutt beint á geðspítala. Vafi leikur á um hvort hún reynist sakhæf en hún hefur áður verið vistuð á geðspítala. Búið er að yfirheyra konunna auk kunningja, nágranna og þeirra sem þekkja til hennar. Frá þessu greinir í netútgáfu Aftenposten.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×