Erlent

Segja Bandaríkjaher hafa drepið 40 óbreytta borgara

Bandarískir hermenn að störfum í Bagdad.
Bandarískir hermenn að störfum í Bagdad. MYND/AP

Írakskir læknar segja fjörutíu óbreytta borgara hafa fallið undanfarinn sólarhring í loftárásum Bandaríkjahers í vesturhluta Íraks, nærri landamærum Sýrlands. Bandaríkjamenn verjast fregnum af málinu.

Læknar í borginni Al-Qaim segja að fjörutíu óbreyttir borgarar hafi látist og tuttugu særst síðan í gærkvöldi í árásum með bandarískum herflaugum. Einn þeirra segir ástandið í borginni minna á það stríðsástand sem ríkti í Fallujah fyrir rösku ári síðan, þar sem Bandaríkjaher gerði hrinu árása á vígi uppreisnarmanna.

Ættbálkaleiðtogar á svæðinu bera bandaríska herinn þungum sökum og segja að engir uppreisnarmenn haldi sig í næsta nágrenni við svæðin sem sprengjunum var beint á. Þar búi bara fjölskyldufólk og því séu árásirnar algjörlega tilgangslausar og það ættu hermennirnir að vita.

Talsmaður bandaríska hersins segist aðeins vita af einni loftárás á borginni og hún hafi beinst að hýbýlum hátt setts al-Qaida liða. Þá sé nákvæmni flauganna einmitt til þess gerð að forðast mannfall meðal óbreyttra borgara og sögusagnir læknanna séu úr lausu lofti gripnar.

Að öðru leyti vildi talsmaðurinn ekki tjá sig um áhlaup Bandaríkjahers við landamæri Sýrlands, sem hófst að nýju í gær.

Undanfarna mánuðu hefur bandaríski herinn ítrekað gerrt loftárásir í al-Qaim, Tal Afar og fleiri borgum við landamæri Sýrlands, þaðan sem þorri sjálfsmorðsárásarmanna í Írak kemur.

Sex bandarískir hermenn létust í sjálfsmorðsárás í Baghdad í morgun og ekki hefur orðið jafnmikið mannfall innan Bandaríkjahers í einum mánuði í Írak síðan í janúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×