Erlent

Eiturlyfjabarón handtekinn í Kólumbíu

Kólumbíska lögreglan hefur handtekið John Eildelber Cano sem talinn er vera einn af æðstu mönnum stærsta eiturlyfjasmyglshrings landsins. Hringurinn, sem kallast Norte del Valle, er talinn standa að baki helmings þess magns eiturlyfja sem flutt hafa verið frá Kólumbíu til Bandaríkjanna síðastliðin tíu ár. Höfuðpaur samtakanna, Diego Montoya, gengur þó enn laus en Montoya er á lista bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, yfir tíu mest eftirlýstu glæpamenn. Efstur á þeim lista er Osama bin Laden, stofnandi hryðjuverkasamtakanna al-Qaida.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×