Afgreiðslutími kráa gefinn frjáls í Bretlandi í næstu viku 16. nóvember 2005 07:45 MYND/Teitur
Ný lög um frjálsan afgreiðslutíma kráa í Bretlandi taka gildi í næstu viku eftir tilraun íhaldsmanna til að seinka gildistíma laganna var hrundið á breska þinginu í gær. Andstæðingar laganna óttast hið versta en stuðningsmenn þess segja það bæta drykkjumenningu Breta. Nýju lögin um afgreiðlsutíma kráa hafa verið mikið rædd í Bretlandi og má segja að þau hafi klofið þjóðina, en hingað til hafa krár aðeins mátt vera opnar til klukkan ellefu. Stuðningsmenn laganna telja að með því að leyfa kráareigendum að ákveða sjálfir hversu lengið er opið séu meiri líkur á að Bretar taki upp drykkjusiði nágranna sinna á meginlandi Evrópu og stilli drykkjunni í hóf. Þá benda þeir á að með þessu megi koma í veg fyrir að allir streymi út af börum á sama tíma með tilheyrandi látum og ofbeldi, en þetta eru svipuð rök og notuð voru hér á landi þegar afgreiðslutímin kráa og skemmtistaða var gefinn frjáls í borginni. Andstæðingar laganna segja hins vegar að lögin muni auk enn frekar andfélagslega hegðun borgaranna og benda á hegðun breskra ungmenna í sólarlöndum máli sínu til stuðnings. Þeir segja að það sé ekki í þjóðareðli Breta að skreppa út á bar og fá sér einn drykk og lengri afgreiðslutími muni bara gera lögreglu erfiðara fyrir í starfi sínu. Athygli vekur að aðeins 700 af um 190 þúsund kráareigendum hafa sótt um það að hafa opið allan sólarhringinn en hins vegar hafa þrír af hverjum fjórum sótt um að lengja afgreiðslutímann um eina til þrjár klukkustundir.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira