Hótar óeirðaseggjum frekari aðgerðum 13. nóvember 2005 12:45
Innanríkisráðherra Frakklands hótar að herða enn frekar aðgerðirnar gegn ungum mótmælendum sem staðið hafa fyrir óöld í landinu undanfarnar sautján nætur. Lögreglan beitti táragasi í Lyon í nótt þegar ungmenni gengu þar berserksgang. Þótt töluvert hafi dregið úr óöldinni í Frakklandi eftir að neyðarlög tóku þar gildi, ríkir slæmt ástand víða þar sem æstir og reiðir afkomendur innflytjenda láta enn til skarar skríða til að leggja áherslu á bága stöðu sína í samfélaginu. Í fyrsta skipti í nótt frá því óeirðirnar brutust út í landinu fyrir rúmum tveimur vikum, brutust út óeirðir í Lyon, annarri stærstu borg landsins, en þar gengur ungmenni berserksgang og kveiktu í tugum bifreiða og unnu skemmdir á leikskóla. Lögreglan beitti táragasi til að dreifa mannfjöldanum og kom til harðra átaka. Nicolas Sarkozy, innanríkisráðherra Frakklands, ítrekaði, eftir fund með yfirmönnum lögreglunnar í París í gærkvöldi, að þeim útlendingum sem stæðu á bak við ofbeldið og lætin að undanförnu, yrði vísað úr landi. Hann sagði að ef menn ætluðu að búa í landinu og öðlast landvistarleyfi yrðu þeir að virða lögin. Sarkozy undirstrikaði að allir þeir sem bæru ábyrgð á ofbeldinu að undanförnu yrðu látnir svara til saka. Í Strasbourg flykktust ungmenni út á götur í gærkvöldi og kveiktu í bifreiðum og ýmsu sem á vegi þeirra varð, en frönsk yfirvöld segja að kveikt hafi verið í á fjórða hundrað bifreiða í landinu í nótt. Rúmlega hundrað og sextíu manns voru handteknir eftir atburði næturinnar. Ástandið í París var hins vegar með rólegra móti, enda um þrjú þúsund lögreglumenn á vaktinni, auk þess sem sólarhringsbann gegn almennum fundum utandyra var í gildi þar til í morgun.
Erlent Fréttir Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Sjá meira