Enn óeirðir í Frakklandi 12. nóvember 2005 19:43
Útgöngubann hefur verið sett á í Lyon, annarri strærstu borg Frakklands, og í tíu öðrum bæjum þar í grennd, til að reyna að binda enda á óeirðirnar þar. Öryggisgæsla var hert til muna í París í morgun vegna ótta um að óeirðaseggir létu til skarar skríða, en nokkuð virðist hafa dregið úr ólgunni þar. Óöldin í Frakklandi hélt áfram í nótt þegar skemmdir voru unnar á skólabyggingum og verslunum og kveikt var í meira en fimm hundruð bifreiðum víðsvegar um landið, meðal annars í Strasbourg, Marseille og Lyon. Franska lögreglan handtók um tvö hundruð óeirðaseggi, en alls hafa rúmlega tvö þúsund og fjögur hundruð manns verið handteknir undanfarnar tvær vikur. Frönsk yfirvöld gripu til frekari varúðarráðstafana í miðborg Parísar, þar sem búist var við óeirðum vegna ákvörðunar stjórnvalda um sólarhringsbann við almennum fundum utandyra, sem tók gildi í morgun. Þúsundir lögreglumanna standa vaktina í höfuðborginni, en talið er að óeirðaseggir hvetji til skemmdarverka vegna bannsins. Í Lyon, annarri stærstu borg Frakklands, hefur verið sett á útgöngubann, sem gildir yfir helgina, en samkvæmt því mega börn undir lögaldri ekki vera úti frá klukkan tíu á kvöldin til sex á morgnana, án þess að vera í fylgd með fullorðnum. Bannið nær einnig til tíu annarra bæja í grennd við Lyon, en um þrjátíu borgir og bæir hafa gripið til útgöngubanns frá því óeirðirnar byrjuðu í Frakklandi fyrir rúmum tveimur vikum. Þótt ólætin hafi haldið áfram í Frakklandi undanfarna sólarhringa, hefur verulega dregið úr óeirðunum í landinu frá því stjórnvöld tóku í gildi neyðarlög sem meðal annars heimiluðu að sett yrði á útgöngubann. Nú undir kvöld var allt með kyrrum kjörum í París og í úthverfum borgarinnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira