Erlent

Al-Qaida talið bera ábyrgð á árásum í Amman

Myrndir teknar í anddyrinu á Radisson SAS hótelinu í Amman eftir árásina.
Myrndir teknar í anddyrinu á Radisson SAS hótelinu í Amman eftir árásina. MYND/AP

Flest bendir til að al-Qaida beri ábyrgð á þrem sjálfsmorðsárásum í Jórdaníu í gærkvöldi, sem urðu minnst 57 manns að bana. Um þrjú hundruð manns eru sárir eftir árásirnar, sem voru gerðar á þrem hótelum í Amman, höfuðborg Jórdaníu, með stuttu millibili.

Fyrsta sprengjan sprakk á Grand Hyatt hótelinu laust fyrir klukkan sjö að íslenskum tíma. Aðeins fáeinum mínútum síðar var gerð árás á Radisson SAS hóteli skammt frá þar sem fjölmenn brúðkaupsveisla stóð yfir. Loks sprakk bifreið hlaðin sprengiefni fyrir utan Days-Inn hótelið skömmu síðar.

Hótelin eru öll mjög vinsæl meðal vestrænna og ísraelskra ferðamanna. Jórdanir hafa lokað landamærum að landinu og víðtæk leit er hafin að mönnum sem tengjast árásunum. Bandaríkjastjórn bauð strax í gækvöldi fram aðstoð sína við rannsókn málsins og leitinni að þeim sem bæru ábyrgð á ódæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×