Blair galt afhroð í fyrsta sinn 9. nóvember 2005 19:14
Í fyrsta sinn frá því að Tony Blair varð forsætisráðherra Bretlands galt hann í dag afhroð í þinginu. Þingmenn höfnuðu með afgerandi hætti drögum Blairs að hryðjuverkalögum þrátt fyrir ákafar tilraunir hans til að telja þingheimi hughvarf. Blair lagði allt í sölurnar til að fá nýju hryðjuverkalögin samþykkt en allt kom fyrir ekki. Lögreglan vill geta haldið grunuðum hryðjuverkamönnum í þrjá mánuði til yfirheyrslna þar sem hryðjuverkamál geti oft verið flókin, krafist samvinnu við erlend yfirvöld og þess að dulkóðuð gögn séu ráðin. Gagnrýnendur segja þetta óréttmætar tillögur sem séu til þess fallnar að auka reiði ungra múslíma, sem séu þeir sem líkast til verði fyrir barðinu á þessum reglum. Blair varði lögin með kjafti og klóm í þinginu í dag. Hann sagði að gerðar hafir verið breytingar. Lögregla hafi sagt að hún verði að hafa þetta vald til að koma í veg fyrir hryðjuverk í Bretlandi. „Á síðustu viku höfum við komist að því að frá 7. júlí hefur verið komið í veg fyrir tvær hryðjuverkaárásir í landinu. Í gær tilkynntu Ástralar ..." sagði Blair en þurfti hér að gera hlé á máli sínu vegna framíkalla þingmanna, m.a. hrópaði einn: „Ég trúi því ekki!" Blair svaraði því til að kannski mætti taka meira mark á þeim sem komu í veg fyrir árásirnar. Blair kallaði ráðherrana Gordon Brown og Jack Straw heim úr utanlandsferðum til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni en það dugði ekki til. Andstæðingar þessara laga voru fleiri, 322 á móti 291 sem var þeim fylgjandi. Þetta er í fyrsta sinn síðan Verkamannaflokkurinn komst til valda árið 1997 sem stjórnin geldur afhroð með þessum hætti, og þykir þetta ekki síst til marks um þverrandi pólitískan mátt Blairs, sem varð að kalla eftirmanninn Brown sér til stuðnings, sem dugði þó hvergi nærri til.
Erlent Fréttir Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira