Frakkar setja útgöngubann 9. nóvember 2005 06:45
Jacques Chirac Frakklandsforseti lýsti í gær yfir neyðarástandi til að hægt væri að setja á útgöngubann í þeim sveitarfélögum þar sem verstu óeirðirnar hafa átt sér stað að undanförnu. Þessi ráðstöfun á sér vart fordæmi í sögu Frakklands eftir stríð, en til hennar er gripið til að binda enda á verstu bylgju uppþota sem orðið hafa í landinu í áratugi. Yfirlýsingin um neyðarástand, sem heimilar að sett sé útgöngubann þar sem ástæða þykir til, tók gildi á miðnætti í gærkvöld og er í gildi í tólf daga til að byrja með. Allt tiltækt lögreglulið hefur verið kallað á vakt til að fylgja útgöngubanninu eftir, einkum og sér í lagi í innflytjenda-úthverfunum norður af París. Herinn hefur ekki verið kallaður til. "Þetta er nauðsynlegt til að flýta því að koma á friði og spekt," sagði Chirac á ríkisstjórnarfundi. Neyðarástandslögin sem Chirac ákvað að beita nú voru upprunalega sett árið 1955, er stríð Frakka í Alsír stóð sem hæst. Eftir að hafa staðið svo til ráðþrota gagnvart óeirðunum tólf daga í röð og horft upp á þær breiðast út til æ fleiri borga í landinu - og jafnvel út fyrir landamærin - sá ríkisstjórnin ekki annan kost í stöðunni en að grípa til svo róttækra ráðstafana. Þeir sem staðnir eru að því að brjóta útgöngubannið eiga yfir höfði sér allt að tveggja mánaða fangelsi. Enn fremur munu sýslumenn og aðrir fulltrúar héraðsyfirvalda hafa vald til að úrskurða fólk í heimafangelsi, gera vopn upptæk og loka opinberum stöðum þar sem gengi koma saman. Frá þessu greindi Dominique de Villepin forsætisráðherra í ræðu á þingi. Hann bætti því við að það myndi taka tíma að koma á lögum og reglu. En Villepin rétti líka út sáttahönd til innflytjendanna í "vandræðaúthverfunum" með því að viðurkenna að þeir mættu þola stöðuga mismunun, sem væri blettur á frönsku samfélagi. "Þetta er ögurstund fyrir lýðveldið," sagði hann. Hvernig aðlögun innflytjenda að frönsku samfélagi væri háttað yrði að endurskoða. Fulltrúar mannréttindasamtaka lýstu í gær áhyggjum af flýtimeðferð sem dómstólum er ætlað að beita við afgreiðslu ákæra gegn meintum brennuvörgum og óeirðaseggjum.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Sjá meira