Veita leyfi til að koma á útgöngubanni 8. nóvember 2005 11:00 Slökkviliðsmenn berjast við elda í Gentilly, suður af París, í nótt. MYND/AP
Nokkuð dró úr uppþotum í úthverfum Parísar í gærkvöld eftir að frönsk yfirvöld tilkynntu að borgar- og sveitastjórnum yrði heimilt að setja útgöngubann til að stemma stigu við óeirðunum. Nóttin var þó ekki átakalaus því víða annars staðar í Frakklandi voru bílar brenndir og ráðist gegn lögreglu. Óöldin í borgum og bæjum Frakklands hefur nú staðið tólf nætur í röð og nú virðast frönsk stjónvöld loks tilbúin að grípa í taumana. Domique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, tilkynnti í gær að yfirvöldum í þeim borgum og bæjum þar sem óöld hefur ríkt fengju leyfi til að koma á útgöngubanni til að takast á við vandann. Sérstakur ríkisstjórnarfurndur var haldinn í morgun þar sem þessi áform voru samþykkt og er búist við að bæjar- og borgaryfirvöld geti sett útgöngubann strax á morgun. Útgöngubannið verður sett í samræmi við hálfrar aldar gömul lög sem upphaflega voru sett til að takast á við ofbeldi í Alsír þegar Alsíringar börðust fyrir sjálfstæði sínu á árunum 1954-1962. Þá sagði Villepin að stjórnvöld myndu gera hvað sem er til að koma á ró í landinu. Samþykkt hefur verið að styrkja þann lögreglumannahóp sem berst við óeirðaseggina um 1500, en nú glíma um átta þúsund lögreglumenn við vandann. Villepin útilokaði hins vegar að kalla til herinn. Þrátt fyrir að öldur hafi aðeins lægt í úthverfum Parísar í nótt var víða kveikt í bílum annars staðar í landinu, þar á meðal í borgunum Lille og Toulouse. Ríflega þúsund bílar stóðu í ljósum logum í nótt og 330 voru handteknir vegna óláta, en tólf lögreglumenn særðust í átökum við óeirðaseggi. Þá var kveikt í tveimur skólum í héruðum norður af París. Þegar hefur einn maður látið lífið í óeirðunum, en hann lést á sjúkrahúsi í gær eftir að hafa verið barinn til óbóta á föstudaginn var. Alls hefur verið kveikt í hátt í sex þúsund bílum, um 1500 manns hafa verið handteknir og 120 slökkviliðs- og lögreglumenn slasast í átökum við óeirðaseggi og elda.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Sjá meira