Mikil leynd yfir fangelsum 3. nóvember 2005 19:24
Mikil leynd hvílir yfir dularfullum fangelsum þar sem meintir hryðjuverkamenn eru yfirheyrðir. Yfirvöld í Evrópu og Bandaríkjunum áttu erfitt með að svara spurningum fréttamanna um málið í dag. Það fer ekki ámilli mála að bandaríska leyniþjónustan , CIA , flytur fanga á milli landa í ýmsum tilgangi og vitað er að fanga vélar haf a millilent hér á landi. Hvort þær voru á vegum CIA er hins vegar ekki ljóst, Bandaríkjamenn svara engu til um það. Á vegum CIA er a nnars vegar er um að ræða einstaklinga sem er rænt og þeir fluttir nauðugir á milli landa til yfirheyrslu og jafnvel pyntinga. Hins vegar er um að ræða flutninga á milli herfangelsa, til að mynda til og frá Guantanano-herfangelsinu. Fréttaþátturinn 60mínútur greindi frá slíkum tilfellum, m.a. einu þar sem tveir Egyptar voru teknir í misgripum. Sænskir lögreglumenn tóku mennina í Stokkhólmi og fluttu út á flugvöll þar sem óþekktir menn biðu þeirra. Flugvélin var skráð í Bandaríkjunum með númerið N-379-P, en vél með sama skráningarnúmer hefur farið fimm sinnum um íslenska lofthelgi, þó ekki millilent. Eigandi vélarinnar er Premiere Executive Transport og hefur fyrirtækið skipt um skráningarnúmer á vélinni nokkrum sinnum. Vélin virðist aldrei hafa komið við hér á landi en lent meðal annars á herstöðinni við Guantanamo-flóa á Kúbu, í Egyptalandi, Jórdaníu, Íraq, Marokkó, Afganistan, Líbíu og Úsbekistan, samkvæmt því sem sænskir rannsóknarblaðamenn komust að. Félagið á aðra vél af gerðinni Boeing 737 . Það er ómerkt vél sem verið hefur á svipuðum slóðum. Og þar sem Premiere Executive Transport er skráð er ekkert að finna, engin merki um flugfélag kom fram í Sextíu mínútum. Þessar vélar flytja einnig fanga á svokallaða svarta staði, en það er heitið sem notað er yfir herfangelsin þar sem Bandaríkjamenn eru sagðir halda tugum meintra hryðjuverkamanna, yfirheyra þá og pynta. Talsmenn samtakanna Human Rights Watch segja vísbendingar um að löndin, þar sem þessir leynistaðir eru, séu Pólland og Rúmenía. Þaðan hafi flugvélar farið frá Afganistan og Miðausturlöndum. Utanríkisráðherra Rúmeníu hefur neitað þessu og í Póllandi kveðst enginn hafa vitneskju um neitt. Lykilorðið í málflutningi allra sem svöruðu fyrir málið í dag var orðið "ef" . Stephen Hadley, þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna, sagði að sú staðreynd að staðirnir væru leynilegir, ef menn gæfu sér að slíkir staðir væru til, þýddi ekki að einfaldlega vegna þess að sumir segja að prófsteinninn á sannfæringu manns sé það að maður gerir þegar enginn sjái til. Forsetinn hefði lagt áherslu á það að hvort sem þetta væri fyrir opnum eða luktum dyrum myndu sumu grundvallarreglurnar gilda og þær sömu verða virtar. Friso Roscam Abbing, talsmaður Evrópusambandsins, sagði að ESB gæti ekki og myndi ekki tjá sig um þessar fregnir. Ef eitthvað væri til í málinu þá væri um að ræða mál sem hefði orðið að samkomulagi milli Bandaríkjanna og einstakra aðildarríkja. Það eina sem ESB gæti sagt hvað varðaði meðferð fanga innan yfirráðasvæðis aðildarríkja ESB að það væri ljóst að öll 25 aðildarríkin sem hefðu undirritað Mannréttindasáttmálann og alþjóðasamþykktina gegn pyntingum ættu að virða að fullu og hrinda í framkvæmd þeim skuldbindingum sem í samningunum fælust. Ráðamenn hér á landi vilja ekki ræða þessi mál. Utanríkisráðherra vildi ekki veita viðtal og ekki náðist í forsætisráðherra. Engin svör hafa heldur borist frá bandarískum yfirvöldum en það er leyniþjónustunnar að veita svör.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira