Berlusconi segist hafa stafað ógn af sprengjumanni 3. nóvember 2005 16:15 Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu. MYND/AP
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, segir að sjálfsmorðsárásarmaður hafi ætlað að ráða hann af dögum á knattspyrnuleik. Hann sakar einnig pólitíska andstæðinga sína um að auka hættuna á hryðjuverkaárásum í landinu með því að draga heilindi hans í efa. Þessi orð lætur Berlusconi falla í viðtali við ítalska dagblaðið Libero í dag. Berlusconi á ítalska stórliðið AC Milan og fer reglulega á leiki liðsins en í viðtalinu tilgreinir hann ekki nánar hvenær komist hafi upp um áætlunina um tilræði við hann eða hvort hann sé enn í hættu. Haft er eftir talsmanni innanríkisráðuneytisins að andhryðjuverkasveit í landinu hafi fengið upplýsingar um meint tilræði við forsætisráðherrann en hann neitar að gefa frekari upplýsingar um málið. Berlusconi hefur sætt harðri gagnrýni heima fyrir vegna stuðnings ítölsku ríkisstjórnarinnar við Íraksstríðið, en þrjú þúsund ítalskir hermenn eru nú í Írak. Stjórnarandstaðan segir það hafa leitt til þess að hryðjuverkamenn beini nú sjónum sínum að Ítalíu, en þeir hafa þegar hótað árásum á landið á vefsíðum sínum. Berlusconi sagði hins vegar í vikunni að hann hefði reynt að fá Bush Bandaríkjaforseta ofan af því að ráðast inn í Írak en fyrir þau orð hefur hann hlotið háð og spott andstæðinga sinna og ítalskra blaða. Í viðtalinu í Libero bregst Berlusconi hart við háðinu og sakar blaðamenn og stjórnarandstæðinga um að vinna gegn hagsmunum Ítalíu og auka hættuna á hryðjuverkum í landinu með gagnrýni sinni. Innanríksiráðherra Ítalíu, Guiseppe Pisanu, hefur látið hafa eftir sér að hryðjuverkamenn knýi dyra á Ítalíu og að hætta á árásum í landinu verði mest á næsta ári þegar Vetrarólympíuleikar fara þar fram sem og þingkosingar.
Erlent Fréttir Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira