Erlent

Hefði ekki getað orðið á verri tíma

Ramadan, föstumánuður múslíma var nýhafinn þegar jarðskjálftinn stóri reið yfir fjallahéruð Pakistans. Örþreyttir hjálparstarfsmenn vinna því á fastandi maga frá morgni til kvölds. Skjálftinn hefði því varla getað riðið yfir á verri tíma, að sögn íslensks sendifulltrúa Rauða krossins sem þar er að störfum.

Jarðskjálftinn varð fyrir rúmum þremur vikum og nú er vitað að fórnarlömbin eru ekki færri en sextíu þúsund, og slasaðir mun fleiri. Sólveig Ólafsdóttir er í Pakistan á vegum Alþjóða Rauða krossins og hún segir ekki ólíklegt að tala látinna eigi eftir að tvöfaldast, jafnvel þrefaldast þegar öll kurl eru komin til grafar. Hún kom til Pakistans fyrir tíu dögum og fór beina leið á vettvang í Katardalnum þar sem eru , eða voru , fjölmörg smærri þorp. Sólveig segir bæinn nokkur þúsund manna, en varla eitt einasta hús standi enn. Hús í hlíðum hafi hreinlega runnið niður og ekkert sé eftir.

Sólveig hefur unnið á hamfarasvæðum víða um heim og segir þetta vissulega vera með því verra sem hún hefur séð, ekki síst vegna þess að tíminn hefði ekki getað verið verri. Vetur vofi yfir en einnig sé gríðarlega erfitt að koma hjálpargögnum þangað sem þörf er á þeim, þegar vegasamgöngur eru litlar sem engar. Ekki bætti úr skák að Ramadan, föstumánuður múslima var nýgenginn í garð, en þá fasta þeir frá sólarupprás til sólarlags. Mikið álag sé á fólk í hjálparstarfi og það sé vart hægt á fastandi maga. Meirihlutinn hafi haldið föstuna þrátt fyrir jarðskjálftann og því sé álagið mikið.

Mikil matar-og fjölskylduhátíð er framundan, í lok Ramadans, en það er hætt við að margir munu ekki hafa möguleika né löngun til mikilla hátíðahalda. Hjálparstarf mun þó að miklu leyti liggja niðri þessa hátíðisdaga, því innlendir hjálparstarfsmenn halda hana hátíðlega. Sólveig segir að eins og er sé um helmingur þess fjár sem metið er að þurfi til að koma flestum til hjálpar kominn, en framundan sé gríðarlegt kapphlaup við tímann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×