Þúsundir vottuðu Parks virðingu sína 31. október 2005 19:00
Þúsundir Bandaríkjamanna vottuðu minningu mannréttindafrömuðarins Rosu Parks virðingu sína í dag þegar kistunni með jarðneskum leifum hennar var stillt upp í Rotunda-hvelfingunni milli þinghúsanna í Washington-borg. Hingað til hafa aðeins þrjátíu mestu þjóðhetjur Bandaríkjanna, svo sem Abraham Lincoln og John F. Kennedy fengið að liggja í Rotunda-hvelfingunni um tíma svo borgararnir gætu vottað þeim virðingu sína. Allt hafa það verið karlmenn, svo það má segja að Rosa Parks haldi áfram að brjóta blað í sögunni, jafnvel eftir dauða sinn. Rosa Parks er konan sem neitaði að standa upp fyrir hvítum karlmanni í strætisvagni í Alabamaríki fyrir fimmtíu árum. Þessi sterka og þrjóska saumakona, sem var handtekin í kjölfarið, markaði þannig upphafið að áralangri baráttu blökkumanna fyrir afnámi laga um aðskilnað og ójöfnuð milli svartra og hvíta í Bandaríkjunum. Parks lést síðasta mánudag, 92 ára gömul og var kistu hennar flogið frá Detroit til höfuðborgarinnar Washington í gær, svo bæði framámenn í samfélaginu og almennir borgarar fengju tækifæri til að votta Parks virðingu sína. Frá árinu 1852 hafa aðeins þrjátíu manns legið í Rotunda hvelfingunni á Kapitólhæð, nær allir þjóðarleiðtogar eða -hetjur. Allt hafa það verið karlmenn, þar af aðeins einn blökkumaður, svo Rosu Parks hefur þannig eftir lát sitt, tekist að brjóta niður enn einn vegginn.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira