Segja Bandaríkjaher hafa drepið 40 óbreytta borgara 31. október 2005 17:00 Bandarískir hermenn að störfum í Bagdad. MYND/AP
Írakskir læknar segja fjörutíu óbreytta borgara hafa fallið undanfarinn sólarhring í loftárásum Bandaríkjahers í vesturhluta Íraks, nærri landamærum Sýrlands. Bandaríkjamenn verjast fregnum af málinu. Læknar í borginni Al-Qaim segja að fjörutíu óbreyttir borgarar hafi látist og tuttugu særst síðan í gærkvöldi í árásum með bandarískum herflaugum. Einn þeirra segir ástandið í borginni minna á það stríðsástand sem ríkti í Fallujah fyrir rösku ári síðan, þar sem Bandaríkjaher gerði hrinu árása á vígi uppreisnarmanna. Ættbálkaleiðtogar á svæðinu bera bandaríska herinn þungum sökum og segja að engir uppreisnarmenn haldi sig í næsta nágrenni við svæðin sem sprengjunum var beint á. Þar búi bara fjölskyldufólk og því séu árásirnar algjörlega tilgangslausar og það ættu hermennirnir að vita. Talsmaður bandaríska hersins segist aðeins vita af einni loftárás á borginni og hún hafi beinst að hýbýlum hátt setts al-Qaida liða. Þá sé nákvæmni flauganna einmitt til þess gerð að forðast mannfall meðal óbreyttra borgara og sögusagnir læknanna séu úr lausu lofti gripnar. Að öðru leyti vildi talsmaðurinn ekki tjá sig um áhlaup Bandaríkjahers við landamæri Sýrlands, sem hófst að nýju í gær. Undanfarna mánuðu hefur bandaríski herinn ítrekað gerrt loftárásir í al-Qaim, Tal Afar og fleiri borgum við landamæri Sýrlands, þaðan sem þorri sjálfsmorðsárásarmanna í Írak kemur. Sex bandarískir hermenn létust í sjálfsmorðsárás í Baghdad í morgun og ekki hefur orðið jafnmikið mannfall innan Bandaríkjahers í einum mánuði í Írak síðan í janúar.
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira