Talsvert um smölun 31. október 2005 16:40
Þó nokkur smölun í Sjálfstæðisflokkinn hefur þegar átt sér stað vegna prófkjörs flokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Þá hafa um 250 manns þegar greitt atkvæði utan kjörstaðar. Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, segir kjörsóknina utan kjörstaða mjög svipaða nú og alla jafna í prófkjörum flokksins í Reykjavík. Hann segist þó eiga von á því að heildarkjörsókn nú verði jafnvel meiri en alla jafna. Síðast kusu átta þúsund manns úí prófkjöri Sjálkfstæðisflokksins í Reykjavík og Kjartan á von á því að nokkru fleiri kjósi nú. Alls eru á milli sextán og sautján þúsund manns á kjörskrá. Kjartan segir að þó nokkuð af nýju fólki hafi skráð sig í Sjálfstæðisflokkinn undanfarið. Hann vill þó ekki meina að meiri smölun hafi átt sér stað nú en alla jafna í aðdraganda prófkjörs í Reykjavík. Bæði Gísli Marteinn Baldursson og Vilhjálmur Vilhjálmsson, sem berjast um fyrsta sætið, segja að fjöldi fólks hafi skráð sig í flokkinn undanfarið gagngert til að kjósa í prófkjörinu. Gísli segist hafa unnið ötullega að því ásamt fleirum að fá nýtt fólk í flokkinn og segir þá sem hafa skráð sig í flokkinn gagngert til að kjósa sig, hlaupa á hundruðum. Hann á von á því að fleiri bætist í þann hóp á næstu dögum. Vilhjálmur segist ekki hafa beitt sér sjálfur í þessum málum, en segir að margir vinni fyrir sig og fjöldi óflokksbundins fólks hafi lýst yfir vilja til að ganga í flokkinn til að kjósa sig. Fyrstu tölur úr prófkjörinu birtast um klukkan sex á laugardaginn og endanleg úrslit ættu að liggja fyrir þegar líða tekur á kvöldið.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira