Erlent

Ályktað um að Sýrlendingar sýni fulla samvinnu

MYND/AP

Öryggisráð Sameinuðu Þjóðanna samþykkti í dag einróma ályktun um að Sýrlendingum bæri að sína fulla samvinnu vegna rannsóknar á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons. Fulltrúar Bandaríkjanna og Frakklands í Öryggisráðinu fóru upphaflega fram á að inni í ályktuninni yrði gert ráð fyrir efnahagsþvingunum ef Sýrlendingar myndu ekki reynast samvinnufúsir. Þeir drógu hins vegar í land og sættust á ákvæði um ótilgreindar aðgerðir ef svo færi að stjórnvöld Sýrlands myndu ekki sýna samvinnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×