Erlent

Kona greinist með fuglaflensu í Tælandi

Tælensk heilbrigðisyfirvöld greindu frá því í dag að 50 ára gömul tælensk kona hefði greinst með fuglaflensu. Hún er tuttugasti einstaklingurinn sem greinist með fuglaflensu í Tælandi, frá því að fuglaflensan kom upp þar fyrir tveimur árum.

Staðfest var að konan væri smituð af fuglaflensuveirunni eftir að niðurstöður þriggja prófa voru allar jákvæðar. Konan er sögð vera á bataleið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×