Erlent

25 látnir og 70 þúsund flúnir

MYND/Reuters

Að minnsta kosti tuttugu og fimm hafa látist í flóðum og aurskriðum í Víetnam undanfarna daga eftir að fellibylur gekk yfir landið. Tæplega sjötíu þúsund manns hafa flúið heimili sín vegna hamfaranna. Í síðasta mánuði létust 120 manns þegar annar fellibylur gekk yfir Víetnam og nágrannalöndin Kína, Laos, Filippseyjar og Taíland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×