Sex í haldi í Danmörku 30. október 2005 21:15
Danska lögreglan leggur höfuðáherslu á að finna hver sé forsprakki í hópi manna sem eru grunaðir um að hafa ætlað að fremja hryðjuverk. Sex eru í haldi lögreglunnar vegna rannsóknar málsins. Í gær voru karlmaður og kona um tvítugt úrskurðuð í varðhald í Danmörku, grunuð um þáttöku í skipulagningu hryðjuverkaárásar. Fyrr höfðu fjórir ungir menn frá sextán til tuttugu ára verið úrskurðaðir í varðhald. 6 manna hópurinn tengist grunuðum hryðjuverkamönnum sem eru í haldi lögreglunnar í Bosníu. Rannsókn dönsku lögreglunnar beinist að því að uppræta mögulega deild hryðjuverkasamtaka í Danmörku. Hún segir þó að ekki megi búast við fleiri handtökum á næstunni. Hins vegar segir talsmaður lögreglunnar eðlilegt að rætt sé við fleiri í tenglsum við málið og skorar hann á alla sem hafi upplýsingar um málið að koma þeim til lögreglu. Upplýsingaflæði dönsku lögreglunnar hefur verið gagnrýnt af verjendum hinna handteknu, sem segjast ekki hafa sama tækifæri til að tjá sig, þar sem málið sé rekið fyrir luktum dyrum. Lögreglan segir almannahagsmuni í húfi en viðurkennir þó að hún sé á gráu svæði. Lágur aldur hinna handteknu vekur upp spurningar um hvort eldri einstaklingar standi að baki skipulagningu hópsins. Talsmaður lögreglunnar segir það vissulega sæta furðu að einungis barnungir menn skuli handteknir vegna málsins. Hins vegar hafi ekkert komið fram við rannsókn lögreglu sem bent gæti til þess að eldri aðilar eða þekkt samtök tengist mönnunum.
Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira