Erlent

Auknar líkur á lækningu þunglyndis

MYND/Getty images

Þunglyndissjúklingar eiga nú betri möguleika á lækningu í framtíðinni. Danskir vísindamenn eru bjartsýnir á að rannsóknir undanfarinna ára og nú tækni verði til þess að hægt sé að greina þunglyndi fyrr og meðhöndla.

Þunglyndi er nú í fjórða sæti á lista Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar um sjúkdóma sem rýra lífslíkur og lífsgæði sjúkra og aðstandenda þeirra. Og haldi þróunin áfram er því spáð að sjúkdómurinn verði í fyrsta sæti árið 2020 í Vestur Evrópu. En nú eru það hjarta- og kransæðsjúkdómar sem skipa það sæti. Danskir rannsakendur segja að í dag geti tuttugu prósent þjóðarinnar búist við að fá sjúkdóminn einhvern tíma á lífsleiðinni.

Með nýrri tækni þar sem notast er við kortlagningu arfbera segjast dönsku vísindamennirnir geta greint breytingar á heilastarfsemi þeirra sem eru þungt haldnir af þunglyndi og veitt þeim rétta meðhöndlun mun fyrr en nú er gert. Þeir segja að þjóðfélagið og sá lífsstíll sem það kallar á verði sífellt fjandsamlegra þeim sem hætt er við þunglyndi. Og því sé hin nýja uppgötvun þar sem hægt er að mæla streituhormónið kortísól sem er einn aðalvaldur þunglyndis bylting í meðhöndlun á sjúkdómum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×