Erlent

Handteknir vegna gruns um hryðjuverk

Piltarnir fjórir sem eru í haldi lögreglunnar í Danmörku, vegna gruns um að þeir hafi ætlað að gera hryðjuverkaárásir í Evrópu á næstunni, virðast tilheyra stærra neti hryðjuverkamanna.

Piltarnir eru á aldrinum 16 til 20 ára, og voru handteknir í kjölfar aðgerða lögreglunnar í Sarajevó fyrir rúmri viku, en þar fundust sprengiefni og vopn.

Þá hefur danska lögreglan hefur staðfest fréttir um að tengsl séu milli mannanna og átján ára Svía, sem var handtekinn fyrir hryðjuverkastarfsemi í Sarajevo í Bosníu. Piltarnir eiga allir uppruna sinn að rekja til mið-austurlanda, en amk. einn þeirra er danskur ríkisborgari.

Lögregla réðist til inngöngu á heimilum þeirra í gærmorgun og lagði hald á tölvur, tölvudiska, bækur og farsíma, og peninga aða andvirði um tveggja milljóna slenskra króna. Hræðsla við hryðjuverkaárásir hefur vaxið mjög í Danmörku eftir árásirnar á lestarkerfi Lundúna í júlí, en í Írak eru um 500 danskir hermenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×