Erlent

Starfsmannastjóri Cheney segir af sér

Lewis Libby, náinn aðstoðarmaður og starfsmannastjóri Dick Cheney, varaforseta Bandaríkjanna, sagði af sér fyrir stundu. Fyrr í dag var hann ákærður fyrir að hindra framgang réttvísinnar og bera ljúvitni við rannsókn upplýsingaleka hjá bandarísku leyniþjónustunni, CIA. Libby er sá eini sem ákærður hefur verið í málinu enn sem komið er en hugsanleg aðild Karls Rove, nánasta ráðgjafa George Bush Bandaríkjaforseta, er enn í rannsókn.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×