Ísraelsher haldi ekki aftur af sér 28. október 2005 13:45 MYND/AP
Ísraelsher hefur fengið þau fyrirmæli að halda ekki aftur af sér í leitinni að palestínskum uppreisnarmönnum, þrátt fyrir að Bandaríkjastjórn hafi hvatt hann til að fara sér hægt í allar aðgerðir. Herþotur héldu áfram skotárásum á Gasa í morgun. Í morgun skutu ísraelskar herþotur tveim sprengjum á norðurhluta Gasa, en enginn slasaðist. Fyrr í morgun skutu herskáir Palestínumenn úr sprengjuvörpu í suðurhluta Ísraels, en þar slasaðist heldur enginn. Í gær létust sjö Palestínumenn og fimmtán særðust í loftárás Ísraelshers á Gasa-svæðið. Fórnarlömbin voru á leið frá kvöldbænum þegar árásin var gerð. Einn þeirra sem lést var Shahdi Mhanna, einn æðstu manna uppreisnarhópsins Íslamska-Jihad. Fjóra daga í röð hafa sprengjuárásir gengið á báða bóga og allt er í upplausn á nýjan leik eftir átta mánaða vopnahlé. Síðan vopnahléið hófst hafa stöku árásir átt sér stað, en aldrei eins og síðustu dagana. Í gær gaf Ariel Sharon ísraelska hernum opið skotleyfi á uppreisnarmenn á Gaza og Vesturbakkanum og í morgun ítrekaði Silvan Shalom utanríkisráðherra þessa stefnu Ísraelsmanna. Shalom sagði í morgun að palestínskum uppreisnarmönnum yrði ekki sýnd nokkur einasta miskunnþrátt fyrir viðvaranir Bandaríkjamanna til Ísraels um að hefja hernaðaraðgerðir á ný. Leiðtogar bæði Palestínu og Ísraels eru aftur komnir í skotgrafirnar og ekki annað að sjá en vopnahléið sé nú ekkert nema orðin tóm.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira