Íranar standa við ummæli sín um Ísrael 28. október 2005 12:45 Þúsundir Írana hafa hins vegar safnast saman í höfuðborginni Teheran í dag og hrósað forsetanum og gengið um með mótmælaskilti gegn Ísrael og Bandaríkjunum. MYND/AP
Fátt bendir til að Íranar verði reknir úr Sameinuðu þjóðunum vegna ummæla forseta landsins um að réttast væri að þurrka Ísrael út af landakortinu. Íranar standa við ummælin og segja þetta hafa verið stefnu Írans gagnvart Ísrael um langt skeið. Forsetinn, Mahmoud Ahmadinejad sagði á miðvikudaginn að það væri réttast að þurrka Ísrael út af landakortinu, til að koma á friði fyrir botni Miðjarðarhafs. Þá sagði hann jafnframt að ný alda árása frá Palestínu á næstunni myndi líklega sjá til þess að honum yrði að ósk sinni. Leiðtogar hvaðanæva að úr heiminum fordæmdu ummælin í gær og víða hafa sendiherrar Írans verið teknir á teppið og spurðir út í ummælin. Á fundi leiðtoga Evrópusambandsins í gær var málið tekið upp og allir sammála um að ummælin væru algjörlega óréttlættanleg. Enginn hefur hins vegar enn tekið undir óskir Ísraelsmanna um að reka beri Írana úr Sameinuðu þjóðunum. En þó að Írönum verði ekki refsað á þann máta er ljóst að enn harðar verður nú tekið á kjarnorkuáætlun þeirra. Bæði Bandaríkjamenn og stærstu ríki Evrópu hafa lagt hart að Írönum að láta af þróun kjarnorku, en án árangurs. Nú geta leiðtogar þessara ríkja hins vegar haldið því fram með góðu móti að Ísraelsmönnum stafi bein ógn af hugsanlegum kjarnavopnum Írana. Í morgun barst yfirlýsing frá íranska sendiráðinu í Moskvu, þar sem reynt var að draga úr ummælum forsetans. Hann hafi ekki ætlað sér að tala með þessum hætti og skapa þannig alþjóðlegar deilur. Þúsundir Írana hafa hins vegar safnast saman í höfuðborginni Teheran í dag og hrósað forsetanum og gengið um með mótmælaskilti gegn Ísrael og Bandaríkjunum. Forsetinn sjálfur hélt stuttávarp fyrir framan mótmælendurna, þar sem hann sagðist standa að fullu leyti við orð sín. Þau væru orð írönsku þjóðarinnar og þó að vestrænar þjóðir hefðu fullan rétt á að hafa sína skoðun, væru viðbrögðin við ummælunum algjörlega óréttmæt.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Fleiri fréttir Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Sjá meira