Erlent

Langt frá því að vera nóg

Forseti Pakistans segir þá rúmlega þrjátíu og sjö milljarða króna, sem borist hafa frá alþjóðasamfélaginu vegna hamfaranna í Pakistan í síðustu viku, langt frá því að vera nóg. Segir hann að minnsta kosti þrjú hundruð milljarða króna þurfi til enduruppbyggingar á þeim svæðum sem verst urðu úti. Talið er að um þrjár milljónir manna hafi misst heimili sín í jarðskjálftanum og hafa Sameinuðu þjóðirnar farið þess á leit við NATO að komið verði upp loftbrú til að flytja hjálpargögn og að reisa þurfi um hálfa milljón nýrra íbúða á svæðinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×